Við höfum lokað fyrir afhendingu pantana á Smiðjuvegi ♥
Framvegis verða allar pantanir í netversluninni afhentar með Dropp eða Póstinum! Við viljum þó endilega að þeir sem vilja skoða vörurnar eða versla á staðnum fái tækifæri til þess og því mun verslunin Iðnú (Brautarholt 8) taka vinsælustu vörurnar okkar í sölu í nóvember, fylgstu með!

Flokkunar límmiðar

1.690 kr.

Límmiðarnir eru framleiddir hjá okkur úr hágæða vinyl, afgreiðslutími er 3-7 virkir dagar

Þessir auðvelda flokkunina á heimilinu! Þú velur lit og letur. Um er að ræða 5 stk. í pakka: Pappír, Plast, Flöskur, Gler og Málmar, u.þ.b. 2,5 cm. á hæð.

Límmiðarnir henta eingöngu á slétta fleti svo sem skápahurðar, plastbox o.fl. og þola vel að strokið sé yfir með rakri tusku. Leiðbeiningar fyrir ásetningu fylgja.

Ef þú vilt óska eftir öðrum lit eða ert óviss með hvaða stærð hentar, vinsamlegast hafðu samband í tölvupósti áður en þú leggur inn pöntun.